17.10.2007 00:33:57 / birta
Jess, þá er draumur minn loksins að verða að veruleika sem er að komast til Ameríku...Þannig er mál með vexti að Binni gaf mér ferð til Boston 7. nóv næstkomandi og ætla að fara með ‘Irisi sem er mágkona mín og það er frábær ferðafélagi því hún er svo létt og skemmtileg
Shit hvað við eigum eftir að versla mikið sem er náttúrulega svaka hagstætt því dollarinn er bara u.þ.b. 6o kr núna....Við eigum sem sagt eftir að tapa okkur í búðunum...En ætli mar reyni nú ekki að kíkja á þessa fallegu borg í leiðinni, hehe
Þá er það draumur númer tvö sem fer efst á óskalistann og það er að opna eigið fyrirtæki....
sem ég vona að verði að veruleika.
Kveð í bili Birta
»
04.10.2007 20:46:33 / birta
Það er eins og allir séu í vondu skapi þegar það er svona þungt yfir veðrinu, en ég er sko í fínu skapi mér finnst bara notalegt þegar fer að dimma aðeins úti og geta farið að kveikja á kertum og hafa kósý....það versta er að það er enginn tími í það.. En ég er að fara í smá kveðju matarboð á lagardaginn og ég hlakka ekkert smá til að geta fengið mér smá bjór og slakað á í eina mínútu Svo er ég að fara að skipta um líkamsræktarstöð því ég er búin að fá upp í kok af sporthúsinu og get ekki hugsað mér að stíga fæti inn í þessa skítabúllu.....mæli ekki með því heldur. Er að pæla í að fara í nautilus og þá fæ maður aðgang í sund líka en annrs bíð ég eftir að worldclass komi í Kópavogi...... Bæbæ |
|
»
30.09.2007 23:05:20 / birta
Ætli stelpan hafi ekki skellt sér á æskuslóðir um helgina....’Eg sem sagt fór vestur á firði í Önundarfjörð, þar sem ég var alin upp, til að smala og gekk u.þ.b 12km í bröttustu fjöllum landsins og það var ekkert smá erfittJ Eg segi bara eins og sagt er í dalalíf ” I love it” heheJ ‘I dag er ég svo gjörsamlega að farast í líkamanum enda með blöðrur á fótunum og miklar harðsperrur en sé sko ekki eftir þessu því þó að þetta sé massa erfitt þá líður manni hvílíkt vel á eftir.... þar sem ég hef ekki komið í sveitnina mína í um 10 á var ég í smá vandræðum með að þekkja suma en allir virtust þekkja mig...ætli það sé ekki rauða hárið..hehehe Kveð að sinni BirtaJ
»
17.09.2007 23:45:14 / birta
Það er bara allt gott að frétta að mér er í meistaranum öll hvöld og vinn þess á milli
á mér semsagt ekkert líf þessa dagana...... en sem betur fer er ekki mikill heimalærdómur.
Svo er ég að reyna að koma einhverju stelpum saman í smá ræktarhóp kl 7 á morgnanna og það virðist vera að ganga vel en það er samt harka að mæta svona snemma en þegar mar er kominn uppá lagið með það þá er það ekkert mál...og endilega áhugsasamir sláist í hópinn með okkur
Þetta er svona þegar klukkan slær tvítugt þá þarf mar að hugsa sig um í hvert skipti sem manni órar fyrir því að opna kexsskápinn....hehehe
»
14.11.2006 23:50:54 / birta
hæhæhæ
Elskurnar mínar þið sem komið til mín á Korner, endilega að
hringja sem fyrst og panta jólatímann því það eru allir tímar að
verða farnir
bara að minna á því ég veit að það vilja allir
vera sætir og fínir um jólin ......
'Eg er byrjuð að selja tupperware ef að einhver hefur áhuga á að
halda kynnigu, endilega að hafa samband
bæbæ
»
05.11.2006 20:38:49 / birta
'Eg er sem sagt byrjuð að vinna á Caruso í
auka vinnnu og er búin að vera að vinna alla helgina þar....
Shit þetta er sko kleppara vinna af því að þetta er á þremur
hæðum og er með bröttustu stigum sem ég hef á
ævinni hlaupið upp og niður og mar er sko búin í
löppunum eftir vaktina
en allt fyrir meiri
pening 
Við Binni erum samt komin að niðurstöðu með jólin
því við verðum hér í bænum á aðfangadagskvöld og yfir jólin og svo
förum við norður á gamlárskvöld og verðum þar í einhverja daga og
allir sáttir og ég sérstaklega fegin að vera búin að koma þessu á
hreint
»
31.10.2006 23:51:59 / birta
nó er staðan á málunum að við getum ekki komist að niðurstöðu um
hvort við eigum að ver hér eða fyrir norðan og satt best að segja
langir mig bæði en málið er að mig langar bara að skríða uppí mitt
eigið rúm á aðfangadagskvöld í hrein jólarúmf´öt, þannig að við
verðum sennilega hér ´bænum um jólin en fyrir norðan yfir áramótin.
Svo er kallinn að útskrifast svo að það þarf líka að halda gott
teiti fyrir hann.... vildibar óska að við gætum verið hjá báðum
fjölskyldum á aðfangadagskvöl

'eg er svo klikkuð í kringum þessi
jól eða ég vit ekki hvort að það er klikkun eða skynsegi því e´g er
búin að kaupa 3 stk jólagjafir því ég er ekkki að sjá fram á að ég
hafi nein tím fyrir svona jólaundirbúning þar sem starfið mitt er
hálfgert hæli í desember, en það er samt án ef skemmtilegast
mánuðurinn af árinu því það er sko nóg að gera!!!!!
»
07.10.2006 20:47:17 / birta
er bara heima í kósý og ég veit að ég er rosa löt að blogga
en vá hvað fer mikill tími í þetta!
»
17.09.2006 19:26:42 / birta
Er fyrir norðan núna á króknum að heimsækja tengdafjölskylduna
og kíkja í eins árs afmæli hjá litla frænda hans Binna......vorum
að koma úr heavy kökuveislu en hvað er það ætlar fólk ekkert að
fara aðeins að hætta þessu sykuráti eða hvað mar er bara
afvelta allan daginn eftir svona kræsingar... 'eg er persónulega
ekki mikið fyrir þetta, af hverju ekki bara að bjóða upp á súpu sem
er muklu sniðurgra og minni fyrirhöfn.
En ég er aftur á móti búin að vera í svaka átaki þ.e. hef ekki
borðað neinn sykur,hveiti, ger, heilhveiti og fleira í 10 daga og
er strax búin að missa 3 kíló...jibbí
»
13.08.2006 23:00:56 / birta
Sko núna eru þrjár vikur síðan ég var með flensu og er búinn að
vera með ógeðslegann hósta síðann sem lýsir sé þannig að mar er að
kafna þegar mar hóstar og í sumum tilfellum ælir mar á endanum oj
oj oj en svo byrjaði ég aftur að veikjast á fimmtudag og ég
gafst upp og fór til læknis því að ég var bara hnerrandi og alltaf
að hlaupa pg sníta mér þegar ég var með kúnna hjá mér sem er náttla
ekki girnilegt og læknirinn var svo mikill töffari að þeð var varla
hæt að tala við hann og það lá við að hann klappaði bara á öxlina á
manni og segði "æ æ" en hann lét mig á pensillín og ég er að japla
á því núna eins og smartís
en vona að þessi drulla fari nú úr manni á endanum
»
08.08.2006 16:11:14 / birta
ehhh mar er nú lúinn eftir helgina því ég var að koma af þjóðahátið
sem var geggjuð en brekkusöngurinn toppaði nú samt allt því Það var
geggjað veður á sunnudagskvöldinu...... En ég neita því nú ekki að
það er helv.. dýrt að fara til eyja þessa helgi því buddan tæmdist
bara á no time Og er að pæla í að kíkja í sund núna því það er
komið svo gott veður og fara í bónus því ísskápurinn er tómur því
ég þurfti að henda ansi miklu eftir fimm daga ferðalag og enginn
hefur snert við honum og það var bókstaflega nánast sumt farið að
labba á móti manni þegar ég opnaði hann....hehe svona er lífið
»
05.05.2006 00:26:58 / birta
Vá hvað ég er fegin að vera búin í þessum verklegu prófum og
shit hvað þau eru stressandi, ég gæti farið af taugum og það er
bara eitt próf eftir og það er bara iðnfræði og ég ætla að
rúlla því upp.....hehe. Var að koma heim úr sumó á self og það vara
mjög gaman að hitta gellurnar
bæjó
»
11.04.2006 07:48:57 / birta
Já ég veit að ég er ömurlegur bloggari en málið er að ég hef svo
margt annað við tímann að gera en að sitja fyrir framan tölvuna
allan daginn og blogga

mar er nú góð systir því að ég vaknað kl 4
í morgunn til að skutla henni á Keflavíkurflugvöll því hún var að
fara til Köben en þegar ég var búinn að því skúraði ég stofuna og
sagan er ekki öll því að þegar ég var búin að því þá fór ég í
bakaríið og keipti rúnstykki og færði kallinum morgunmat í rúmið!
Er ég ekki góð kærasta???

Svo var það innflutningspartýið já, það
heppnaðist ekkert smá vel og það komu miklu fleiri en við áttum von
á

EN best að drífa mig að fara að búa til ritzkexbollur til að
hafa í kvöldmatinn....hehe
»
05.04.2006 22:12:30 / birta
'Eg er að fara í páskafrí og millljón fermingar
framundan.....það er náttla bara gaman. 'Eg var líka að fá útúr
iðnfræpiprófi og verð nú að monta mig því ég fékk 9,2 og er ekkert
smá sátt með það
»
12.02.2006 12:05:13 / birta
sko þegar það er ekkert merkilgt að gerast hjá manni hefur
mar ekki neitt að segja og það er bara þannig
en það er sko
ansi mikið búið að vera að ske hjá mér þessa dagana sem er t.d. að
við Binni erum fyrir norða núna að hitta hans fjölskyldu en reyndar
býr afi minn hérna á króknum líka en ég hugsa að ég sleppi því að
kíkja í kaffi núna. SVO erum við Binni að leita okkur að íbúð og
stefnan er að fara að búa saman og ég er því mjög spennt því ég
nenni ekki að búa í litlu kompunni minni lengur
bæbæ
»
Síður:
1 2